Aðild að akademíunni

Umsókn um aðild

Rétt á aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni hafa þau er sannarlega hafa unnið að a.m.k. tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum í einni af eftirfarandi deildum síðastliðin fimm ár, nema annað komi fram.

Umsóknin

Sækja um aðild

Umsóknin er fyllt út á innsendingarvef Eddunnar. Einhver tími getur liðið frá innsendingu og þangað til fjallað er um umsóknina.

Athugið að með kvikmynda- eða sjónvarpsverkefnum er átt við verk sem hafa verið sýnd í íslensku kvikmyndahúsi eða á íslenskri kvikmyndahátíð þar sem almenningi hefur gefist kostur á að mæta (þ.e. sýningin hefur verið í auglýstri dagskrá kvikmyndahússins / hátíðarinnar) og/eða á miðli með umtalsverða dreifingu. Til að stuttmyndir teljist sem gild verk þurfa þær að hafa verið sýndar á alþjóðlegri A-lista hátíð, unnið til verðlauna á Stockfish eða RIFF, og eða hlotið tilnefningu til Edduverðlauna.

Fullfjármögnuð verk í vinnslu geta talist með hjá framleiðenda, handritshöfundi og leikstjóra. Eitt verk þarf þá allavegana að hafa verið sýnt nú þegar og útskýring skal send í tölvupósti á eddan@eddan.is með staðfestingu á stöðu verksins í vinnslu.

Deildir og aðildarkröfur

Áhættuleikur
Samhæfing áhættuatriða, áhættugripill, og áhættuleikari.

Brellur
Brellumeistari, brellur á setti, aðstoð við brellur og vopnavörður.

Búningar
Búningahönnuður, búningastjórn, búningabrellur, aðstoð við búninga, klæðskeri og búninga samhæfingarstjórn.

Eftirvinnsla
Framleiðandi eftirvinnslu, framkvæmdastjóri eftirvinnslu, skipulagsstjóri eftirvinnslu, grafískur hönnuður, litaleiðréttari, og textun.

Farartæki og aðstaða
Farartækjastjóri, samhæfingarstjórn farartækja, aðstöðustjóri, samhæfingastjórn ferða og rafstöðvarstýring.

Framleiðsla
Framleiðandi, meðframleiðandi, yfirframleiðandi, framleiðslustjóri, framkvæmdastjóri, aðstoðarleikstjóri, samhæfingastjóri framleiðslu, skipulagsstjóri, annar aðstoðarleikstjóri, aðstoð við framleiðslu og aðstoð á setti. Starfsfólk í fullri vinnu hjá framleiðslufyrirtæki. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Gagnrýni
Gagnrýnendur og fjölmiðlamenn sem fjalla um menningu. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu, ásamt sýnidæmum.

Handrit
Handritshöfundar, dramatúrg, og leiðbeinendur.

Hár og förðun
Hár og förðun á setti, förðunarfræðingur, leikgervahönnuður, gervahönnuður, aðstoðar förðunarfræðingur, aðstoðar hárgreiðsla, og hár og förðunar samhæfingarstjórn.

Hljóð
Hljóðhönnuður, hljóðblöndun, hljóðupptökustjórn, bómustjórn, bóma á setti, klipping samtala, SFX hljóðupptaka, klipping á hljóðbrellum, foley hönnuður, og foley upptaka.

Hreyfingar
Danshöfundur, hreyfingarþjálfi og sviðsetning.

Klipping
Klippari og aðstoðarklippari.

Kvikmyndahátíðir
Framkvæmdastjórar og dagskrárstjórar kvikmyndahátíða. Senda skal tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Kvikmyndahús
Eigendur, framkvæmdastjórar, dagskrárstjórar, vaktstjórar og tæknimenn kvikmyndahúsa í fullri vinnu. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Kvikmyndataka
Stjórnandi kvikmyndatöku, kvikmyndataka, aðstoðartökumaður, annar aðstoðarökumaður, gagnastjóri, tökumaður í lofti og ljósmyndari á setti.

Leiklist
Leikarar og aukaleikarar.

Leikstjórn
Leikstjórar, leikaraval, skrifta, nándarþjálfi og aðstoð við leikaraval.

Leikmynd
Leikmyndahönnuður, deildarstjóri leikmyndadeildar, leikmyndamálari, stílisti leikmyndar, leikmyndaskreytingarstjóri, leikmyndaskreytir, leikmunameistari, leikmunavörður, umsjón leikmuna á setti, aðstoð í leikmyndadeild, samhæfingarstjórn í leikmunadeild og grafík.

Ljós og grip
Ljósameistari, ljósamaður, aðalgripill, vagnstjóri og gripill.

Sjálfbærni
Sjálfbærnistjórn, samhæfingarstjórn og sjálfbærni á setti.

Sjónvarpsútsendingar
Upptökustjóri, aðstoðarupptökustjóri, tökumaður, hljóðmaður, leikmyndahönnuður, leikmunavörður, hár og förðun, tæknistjóri, sviðsmaður, og myndblöndun.

Tækjaleigur
Starfsfólk í fullri vinnu hjá tækjaleigu. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Tölvubrellur
Stjórnandi tölvubrellna, yfirmaður tölvugerðra mynda, tölvubrellur listamenn, hreyfimyndir, umsjón með VFX verkferlum, grafísk samsetning, eltihreyfing, samhæfingarstjóri tölvubrellna, yfirmaður tölvugerðra mynda, lýsing og myndþýðing, hermun, stafrænn málari og stuðningur við stafræna myndvinnslu.

Tökustaðir
Tökustaðastjóri, aðstoðar tökustaðastjóri, tökustaðaleit, aðstoð við tökustaði, samhæfing tökustaða og öryggisstjóri.

Tónlist
Tónskáld, tónlistarráðgjafar, og umsjónaraðilar tónlistarréttinda.

Umboðsaðilar
Umboðsaðilar og fjölmiðlafulltrúar með íslenska kúnna.

Þar sem listinn er nýr og enn í vinnslu, tekur stjórn ÍKSA ábendingum fagnandi á netfangið eddan@eddan.is og skoðar þær með opnum huga.

Kjörskrá

Á kjörskrá vegna Edduverðlaunanna hverju sinni eru aðeins þeir meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem hafa greitt félagsgjöld ÍKSA það árið. Þeir sem ekki eru á kjörskrá geta farið á eddan.is, skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og greitt félagsgjöldin, fyrir auglýstan frest.

Kærur, er varða kjörskrá ef einhverjar eru, skulu berast ÍKSA ásamt skriflegum rökstuðningi á eddan@eddan.is. Stjórn ÍKSA fjallar um kærur sem kunna að berast.

Umsóknin

Ef þú hefur ekki sótt um aðild að Akademíunni en telur þig uppfylla skilyrðin til að vera þar þá endilega sendu inn umsókn hér að neðan.

Athugaðu að einhver tími getur liðið frá innsendingu umsóknar og þangað til fjallað verður um umsóknina þína.

Þeir sem sækja um eftir 31. desember 2026 verða ekki gjaldgengir í rafræna kosningu Edduverðlaunanna.

Umsókn um aðild

Uppfyllir þú skilyrðin? Sendu inn umsókn.