Um ÍKSA

Sameiginlegur vettvangur hagsmunafélaga kvikmyndagerðarmanna í landinu, stofnaður 1999.

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) var stofnuð árið 1999 og er sameiginlegur vettvangur hagsmunafélaga kvikmyndagerðarmanna í landinu til að stuðla að eflingu íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans. Í þessu skyni stendur Akademían m.a. fyrir veitingu Eddunnar, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna, ár hvert.

Fyrstu Edduverðlaunin voru veitt sama ár og Akademían var stofnuð eða 1999. Eddan er uppskeruhátíð íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans, haldin með það að markmiði að efla hann og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Meðlimir Akademíunnar kjósa sjálfir um þau verk og þá einstaklinga sem fá verðlaunin.

Akademían sér einnig um framlag Íslands til forvals Óskarsverðlaunanna í Bandaríkjunum. Sérstök valnefnd velur úr þeim myndum sem sendar eru inn og uppfylla skilyrðin ár hvert sem bandaríska kvikmyndaakademían setur. Í fyrri umferð velur valnefndin tvær myndir sem koma til greina og að lokum er önnur þeirra valin sem framlag Íslands í flokknum Besta erlenda kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni.

Rétt á aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni hafa þeir er sannanlega hafa unnið að tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum, sjá nánar í starfsreglum. Aðeins þeir sem hafa greitt aðildargjöld ÍKSA eru á kjörskrá hverju sinni.

Stjórn ÍKSA er skipuð af stjórnum þessara félaga og eiga tveir frá hverju félagi sæti í stjórn. Auk þess á fulltrúi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands (KMÍ) sæti í stjórn. Aðsetur akademíunnar er að Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík.

ÍKSA er stofnmeðlimur Bandalags evrópskra kvikmyndaakademía, Federation of Film Academies Europe eða FACE (sem kemur í stað Film Academies Network of Europe sem starfað hafði frá 2006). FACE var formlega stofnað í júlí 2024 í Lúxembourg af kvikmyndaakademíum 20 landa.

Meðal markmiða bandalagsins er að styðja við kvikmyndagerð í Evrópu með virku samstarfi og gæta að hagsmunum hennar með stefnumótandi aðilum.

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademía (ÍKSA) er skráð einkahlutafélag í eigu eftirtalinna aðila:

Félag kvikmyndagerðarmanna FK
Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda SÍK
Samtök kvikmyndaleikstjóra SKL
Áheyrnarfulltrúi í stjórn KMÍ
Stjórn ÍKSA 2025–2026
Fyrri stjórnir 1999–2024
Anton Máni Svansson Formaður · SÍK
Heimir Bjarnason Meðstjórnandi · SKL
Helena Jónsdóttir Meðstjórnandi · SKL
Hrönn Kristinsdóttir Meðstjórnandi · SÍK
Sigríður Rósa Bjarnadóttir Meðstjórnandi · FK
Steingrímur Dúi Másson Meðstjórnandi · FK

Framlag Íslands til Óskarsverðlauna

Sérstök valnefnd velur úr innsendum myndum sem uppfylla skilyrði bandarísku akademíunnar ár hvert.