Framlag Íslands 1996

Djöflaeyjan

Devil's Island

Djöflaeyjan er byggð á metsölubókum Einars Kárasonar („Þar sem djöflaeyjan rís“ og „Gulleyjan“) og segir frá sorgum og sigrum stórfjölskyldu Karólínu spákonu. Amerísk áhrif tröllríða öllu; bílar, áfengi og rock'n roll er það eina sem kemst að hjá Badda, augasteini Karólínu spákonu og elsta barnabarni, og félögum hans. Á meðan fylgist Danni bróðir hans með herlegheitunum úr fjarlægð. Myndin er fyndin og jafnframt hádramatísk saga fjölskyldu sem reynir að halda velli í hörðum heimi. Kvikmyndin hlaut frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda þegar hún var frumsýnd árið 1996 og er ein aðsóknarmesta kvikmynd allra tíma hérlendis, en nærri lætur að þriðjungur þjóðarinnar hafi séð myndina í bíó. Hér hefur valist saman lið úrvalsleikara og -kvikmyndagerðarfólks sem segir sögu sem á sér djúpar rætur í þjóðarsálinni. Afraksturinn er ein af perlum íslenskrar kvikmyndagerðar.

Efnislýsing: Kvikmyndamiðstöð Íslands

Leikstjórn
Friðrik Þór Friðriksson
Framleiðsla
Íslenska kvikmyndasamsteypan
Tegund
Drama
Tungumál
íslenska
Lengd
104 mín.
Alþjóðlegur titill
Devil's Island