Framlag Íslands 2006

Börn

Children

Börn er fyrri hluti kvikmyndatvíleiksins Börn og Foreldrar sem rýnir í sálarfylgsni venjulegra Íslendinga og fjallar um samskipti, skyldur og hlutverk barna og foreldra. Í myndinni segir frá Kartías, einstæðri fjögurra barna móður, sem af örvæntingu reynir að ná endum saman. Á meðan hún er upptekin af deilu við fyrrverandi sambýlismann sinn, um forræði yfir dætrum þeirra þremur, áttar hún sig ekki á að líf elsta sonar hennar, Guðmundar, sem er fórnarlamd eineltis, stefnir smám saman til glötunar. Eini vinur Guðmundar er Marinó, öryrki sem býr ásamt móður sinni í sama stigagangi í Breiðholtinu. Þegar handrukkarinn Garðar klúðrar verki sem hann er ráðinn til að gera og tvíburabróðir hans, Georg, er laminn illilega í framhaldinu er hann útskúfaður bæði úr undirheimum og af eigin fjölskyldu.

Efnislýsing: Kvikmyndamiðstöð Íslands

Leikstjórn
Ragnar Bragason
Framleiðsla
Vesturport
Tegund
Drama
Tungumál
íslenska
Lengd
93 mín.
Alþjóðlegur titill
Children