Framlag Íslands 1994

Bíódagar

Movie Days

Myndin gerist bæði í Reykjavík og norður í Skagafirði, þangað sem Tómas er sendur til sumardvalar í sveit, til fullorðinna föðursystkina sinna og á einu ári upplifir hann átök milli borgarsamfélags í mótun og kyrrstæðs sveitasamfélags. Hugmyndaflug Reykjavíkurpiltanna örvast af hetjum og ævintýrum hvíta tjaldsins; kúrekar, hrollvekjur, Jesús Kristur, Adolf Hitler og meira segja íslensk Hollywood-stjarna skilja eftir varanleg merki á sálum ungra manna í mótun. En þegar Tómas kemur í sveitina kynnist hann tröllum og berserkjum skagfirskra sveitamanna og hrífst af drifkraftinum sem í þjóðsögunum býr. Í Bíódögum teflir Friðrik Þór sjónvarps- og bíóhetjum saman við munnmælasögur og huldukarla og -konur með sérlega skemmtilegum hætti, en kímni og næmi fyrir hinu spaugilega í tilverunni einkennir myndina. Bíódagar er bráðskemmtileg og ljúf fjölskyldumynd sem á sínum tíma þótti sanna hvers Friðrik Þór og samstarfsmenn hans væru megnugir. Myndin hefur hlotið mikið lof og unnið til ýmissa verðlauna og ber þar hæst verðlaun sem besta kvikmynd Norðurlanda árið 1994.

Efnislýsing: Kvikmyndamiðstöð Íslands

Leikstjórn
Friðrik Þór Friðriksson
Framleiðsla
Íslenska kvikmyndasamsteypan
Tegund
Drama
Tungumál
íslenska
Lengd
82 mín.
Alþjóðlegur titill
Movie Days