Allar fréttir

Tilnefningar

Eddan 2025 – opið fyrir innsendingar

20. desember 2024

Opnað hefur verið fyrir innsendingar kvikmyndaverka fyrir Edduna 2025. Gjaldgeng eru verk sem frumsýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2024.  

Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á innsendingarvef Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp fyrir Edduvarpið.

Innsendingargjöld eru sem hér segir: 

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti miðvikudaginn 15. janúar, 2025. Strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.

Tilnefningar til Eddunnar 2025 verða kynntar 25. febrúar 2025.

Senda inn verk til Eddunnar 2025

Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.